Þjónustukönnun raforkusala á Íslandi : hvaða munur er á þjónustu raforkufyrirtækja á Íslandi, og í hverju felst hann?
2022
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Heimsfaraldur Covid 19 og Úkraínustríðið hafa haft gríðarleg áhrif á raforkumarkaðinn um allan heim. Íslendingar geta talist lánsamir að búa hér með nóg af grænni og endurnýjanlegri orku. Hér er hávær umræða um að ekki sé til nóg af rafmagni og virkja þurfi meira til að mæta þeirri þróun sem verið hefur, og til að mæta þeirri breytingu sem felst í orkuskiptunum. En eins og staðan er í dag, eru það forréttindi Íslendinga að raforkuverð hefur ekki hækkað upp úr öllu valdi líkt og í löndum í kringum okkur. Íslendingar taka þessum lífsgæðum sem sjálfsögðum hlut, og velta því ekki endilega mikið fyrir sér hvað þeir séu að borga fyrir orkuna eða hvaðan hún komi. Samkeppni á raforkumarkaði var ekki talin henta. Það var talið hentugast fyrir neytendur að einn aðili sæi um að selja viðskiptavinum rafmagn. En það hefur heldur betur orðið breyting á. Með nýjum raforkulögum sem sett voru 2003 hófst samkeppni á raforkumarkaði. Þó samkeppnin hafi farið hægt af stað þá eru átta raforkusölufyrirtæki á þessum markaði í dag sem virðast keppa einungis í verði. Með þessari rannsókn vill höfundur kanna hvort fyrirtækin séu að einhverju leiti að keppa sín á milli og skapa sér sérstöðu með því að veita góða þjónustu. Á markaði þar sem fyrirtæki bjóða sambærilega vöru þarf að finna leiðir til að ná samkeppnisforskoti. Aðgreining með þjónustu er ein leiðin. ; The Covid 19 pandemic and the Ukraine war have had a huge impact on the electricity market around the world. Icelanders can be considered lucky to live here with plenty of green and renewable energy. There has been some debate recently regarding electricity and that more power is needed to maintain the development that has taken place, and to meet the challenges in the energy exchange. But as the situation is today, Icelanders are privileged that electricity prices have not skyrocketed like in countries around us. Icelanders take this quality of life for granted, and therefore do not necessarily think much about what they are paying for the energy or where it comes from. ...
Titel: |
Þjónustukönnun raforkusala á Íslandi : hvaða munur er á þjónustu raforkufyrirtækja á Íslandi, og í hverju felst hann?
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Aldís María Valdimarsdóttir 1984- ; Háskólinn á Bifröst |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2022 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|